Loftslagsmál
381. mál á 141. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.
Markmið
Að setja lagastoð fyrir innleiðingu á hluta ákvæða reglugerðar ESB um viðskiptakerfi með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda.
Helstu breytingar og nýjungar
Útfærð er lagastoð fyrir innleiðingu reglna EES-samningsins um uppboð losunarheimilda frá og með árinu 2012 og ákvæði sem geta falið í sér íþyngjandi ákvarðanir varðandi reikninga í skráningarkerfi losunarheimilda. Auk þess eru gerðar minni háttar breytingar.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál.
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi áhrif á tekjur og gjöld ríkissjóðs.
Umsagnir (helstu atriði)
Athugasemdir umsagnaraðila eru minni háttar.Afgreiðsla
Samþykkt með nokkrum breytingum sem unnið var að í ráðuneytinu eftir að málið var lagt fram á Alþingi.Aðrar upplýsingar
Innleiða á reglugerð ESB um kerfi varðandi losun gróðurhúsalofttegunda, nr. 1193/2011, með þessum lögum en fyrri reglugerð um sama efni er nr. 920/2010.
Reglugerð nr. 360/2012, um skráningarkerfi fyrir losunarheimildir.
Björg Thorarensen og Stefán Már Stefánsson (2012). Álitsgerð um hvort innleiðing reglugerðar ESB nr. 1193/2011 um sameiginlegt skráningarkerfi fyrir losunarheimildir sé annmörkum háð með tilliti til ákvæða stjórnarskrárinnar. Reykjavík. Utanríkisráðuneytið.