Samantekt um þingmál

Búnaðarlög og framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

448. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að færa í lög breytingar vegna endurnýjunar búvörusamninga og koma til móts við bændur vegna tjóns sem varð í óveðri á Norðurlandi í september síðastliðnum.

Helstu breytingar og nýjungar

Breyta á leiðbeiningarþjónustu bænda þannig að í stað svæðisbundinnar þjónustu verði ein þjónusta fyrir allt landið auk ýmissa minnháttar breytinga sem tengjast búvörusamningnum. Þá er lagt til að heimilaðar verði beingreiðslur og álagsgreiðslur til bænda vegna gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu þrátt fyrir fjárfelli.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á búnaðarlögum nr. 70/1998 og lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð umfram það sem ákveðið er í fjárlögum.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkar athugasemdir og tilmæli bárust og var tekið tillit til þeirra.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Búvörusamningur 2012.

Fjölmiðlaumfjöllun

Fréttatilkynning (13.11.2012) forsætisráðuneytis um fjárstuðning vegna óveðursins.


Síðast breytt 27.12.2012. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.