Samantekt um þingmál

Stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík

618. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja byggingu nýs Landspítala.

Helstu breytingar og nýjungar

Fallið er frá heimild til einkaframkvæmdar og bygging nýs spítala verður hefðbundin opinber framkvæmd, sbr. lög nr. 84/2001. Þó er ráðherra heimilt að bjóða út einstaka byggingarhluta sem síðan yrðu teknir á leigu undir starfsemi spítalans.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 64/2010.

Kostnaður og tekjur

Ýmsir fyrirvarar eru á kostnaðaráætlun en gert er ráð fyrir að heildarkostnaður verði um 100 milljarðar króna sem einkum fellur á árin 2016-2019.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir eru um þetta mál.

Afgreiðsla

Samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Upplýsingavefurinn  Nýr Landspítali.


Síðast breytt 04.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.