Samantekt um þingmál

Vörugjald og tollalög

619. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að laga hnökra í núgildandi lögum.

Helstu breytingar og nýjungar

Smávægilegar breytingar sem einkum snúast um það hvaða tollskrárnúmer ná yfir sykur eða sætuefni og hversu hátt hlutfall sykurs eða sætuefna er í hverju númeri.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 156/2012, sem breyttu lögum nr. 97/1987, um vörugjald, og tollalögum nr. 88/2005.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust þar sem gerðar voru ýmsar athugasemdir við útfærslu á vörugjaldakerfinu.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.


Síðast breytt 15.03.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.