Samantekt um þingmál

Tekjuskattur og staðgreiðsla opinberra gjalda

629. mál á 141. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að breyta lögum vegna kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um að lögin séu ekki í samræmi við EES-samninginn. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987 og lögum um tekjuskatt nr. 90/2003, en þeim var breytt varðandi þessi atriði með lögum nr. 46/2009.
  • Skylt mál: Tekjuskattur, 366. mál (fjármálaráðherra) á 136. þingi (03.03.2009)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir eru um þetta mál.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að verið sé að bregðast við athugasemdum ESA varðandi þessi lög en málið sé snúið og þess vegna séu þessar breytingar lagðar til núna. Stefnt er að því að leggja fram nýtt frumvarp haustið 2013 sem tekur betur á þessum málum.

Þörfnumst við CFC-löggjafar. Vefrit fjármálaráðuneytis 2006.



Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.