Samantekt um þingmál

Kísilver í landi Bakka

632. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að veita ríkisstjórninni heimild til að gera samning um kísilver í landi Bakka í Norðurþingi.

Helstu breytingar og nýjungar

Félagið sem ætlar að byggja kísilverið fær ýmsar undanþágur og ívilnanir sem eru umfram það sem núgildandi lög leyfa, þ. á m. lægri tekjuskatt, 50% afslátt af fasteignagjöldum, engin stimpilgjöld og ekkert tryggingagjald.

Breytingar á lögum og tengd mál

Veita á undanþágur frá lögum um tekjuskatt nr. 90/2003 og lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi nr. 99/2010.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að beinn kostnaður ríkissjóðs geti numið um 800 milljónum króna en auk þess verði ríkissjóður af um 100-150 milljóna króna skattatekjum árlega. Ítarleg og gagnrýnin umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis fylgir máli 633 sem fjallar um uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi á Bakka.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru jákvæðar en ASÍ gerir athugasemdir við sértæk úrræði fyrir einn aðila og mótmælir undanþágu frá tryggingagjaldi.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.