Samantekt um þingmál

Uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka

633. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að veita ráðherra heimild til að fjármagna ýmsar framkvæmdir til undirbúnings vegna atvinnuuppbyggingar í landi Bakka í Norðurþingi.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir að ráðherra fái heimild til að semja við Vegagerðina um gerð vegtengingar milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka og við hafnarsjóð Húsavíkurhafnar um víkjandi lán til hafnarframkvæmda fyrir allt að 819 milljónir kr.

Breytingar á lögum og tengd mál

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs verði rúmlega 2,6 milljarðar króna en engin áform eru um hvernig fjármagna eigi útgjöldin. Fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins gerir alvarlegar athugasemdir við forsendur og útreikninga í þessu máli sem og í máli 632 sem fjallar um heimild til samninga um kísilver á Bakka.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru jákvæðar en ASÍ gerir athugasemdir við sértæk úrræði fyrir einn aðila og mótmælir undanþágu frá tryggingagjaldi.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.

Fjölmiðlaumfjöllun

Gengur lengra en löggjöfin leyfir. Viðskiptablaðið 14. mars 2013.


Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.