Samantekt um þingmál

Stjórn fiskveiða

3. mál á 142. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að framlengja nokkur bráðabirgðaákvæði í núgildandi lögum um eitt ár.

Helstu breytingar og nýjungar

Bráðabirgðaákvæðin sem gert er ráð fyrir að framlengja fjalla um frest eigenda fiskiskipa til að ráðstafa krókaaflahlutdeild, heimild ráðherra til að binda meðferð aflaheimilda ákveðnum skilyrðum varðandi framsal afla úr byggðarlögum, úthlutun ráðherra á síld og skötusel til sérstakrar ráðstöfunar og úthlutun ráðherra á afla til strandveiða og til stuðnings byggðarlögum. Auk þessa  fær rannsóknasjóður 30 milljón króna fjárframlag til að auka verðmæti sjávarfangs.

Breytingar á lögum og tengd mál

Framlengja á bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða til loka fiskveiðiársins 2013–2014, þ.e. til 1. september 2014.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir lítilsháttar tekjuauka.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust þar sem gerðar voru ýmsar athugasemdir við frumvarpið, en þó einkum við úthlutun aflaheimilda.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi.


Síðast breytt 27.06.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.