Samantekt um þingmál

Verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, sameignarfélög og fyrirtækjaskrá

132. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að flytja firmaskrá frá sýslumönnum til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra.

Helstu breytingar og nýjungar

Að flytja firmaskrá frá sýslumönnum til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 42/1903, um verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, lögum nr. 50/2007, um sameignarfélög, og lögum nr. 17/2003, um fyrirtækjaskrá.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að útgjöld aukist um 13,8 milljónir á árinu 2014 en ekki er gert ráð fyrir þeim útgjaldaauka í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014.

Umsagnir (helstu atriði)

Allar athugasemdir voru jákvæðar.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra


Síðast breytt 11.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.