Samantekt um þingmál

Síldarútvegsnefnd og sjóðir í þágu síldarútvegsins

146. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að fjármagna rannsókn á síldardauða í Kolgrafafirði.

Helstu breytingar og nýjungar

Heimila á 31 milljón kr. útgreiðslu úr sjóðnum árið 2013. Árlegar útgreiðslur úr sjóðnum hafa hingað til numið vaxtatekjum sem gert var ráð fyrir að væru 18 milljónir árið 2013. Gengið verður á eigin fé sjóðsins fyrir mismuninum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lögð er til breyting til bráðabirgða við lög nr. 43/1998, um stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegsins.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs en ekki er gert ráð fyrir þessari ráðstöfun í gildandi fjárlögum fyrir árið 2013. 

Umsagnir (helstu atriði)

Ekki var óskað eftir umsögnum.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Hafrannsóknastofnun.

Spurningar og svör vegna síldardauða í Kolgrafafirði.



Síðast breytt 05.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.