Samantekt um þingmál

Verslun með áfengi og tóbak

156. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að skýra með afgerandi hætti hvenær ÁTVR er heimilt að hafna áfengi til sölu í vínbúðum.

Helstu breytingar og nýjungar

Skýrt er með afgerandi hætti hvenær ÁTVR er heimilt að hafna áfengi til sölu í vínbúðum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir um frumvarpið skiptast nokkuð í tvö horn, annars vegar er því fagnað en hins vegar er því fundið flest til foráttu. Til dæmis gerir  Félag atvinnurekenda  verulegar athugasemdir við frumvarpið og telur það brjóta gegn stjórnarskrá og EES-reglum.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítisháttar breytingu.

Aðrar upplýsingar

ÁTVR / Vínbúðin.

Ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í málinu E-2/12, HOB-vín ehf. gegn ÁTVR frá 11. desember 2012. Fréttatilkynning dómstólsins.

Tilskipun 2000/13/EB frá 20. mars 2000 um samræmingu laga aðildarríkjanna um merkingu, kynningu og auglýsingu matvæla, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2001 frá 28. september 2001.

Fjölmiðlaumfjöllun

ÁTVR hafnar drykkjum vegna lostafullra umbúða. Pressan 21.07.2010.

Sigurður Mikael Jónsson. Ríkið verður að selja danskan "dónadrykk". DV 22.03.2013.



Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.