Samantekt um þingmál

Náttúruvernd

167. mál á 143. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að fella úr gildi lög um náttúruvernd.

Helstu breytingar og nýjungar

Að fella úr gildi lög um náttúruvernd, nr. 60/2013, sem taka áttu gildi 1. apríl. 2014.

Breytingar á lögum og tengd mál

Fella á úr gildi lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.
  • Skylt mál: Náttúruvernd, 429. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 141. þingi (21.11.2012)
  • Skylt mál: Náttúruvernd, 140. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 145. þingi (17.09.2015)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Fjölmargar athugasemdir bárust þar sem annaðhvort var lýst yfir stuðningi við að lögin tækju gildi eða gildistökunni yrði frestað en efnislegar athugasemdir voru fáar og almennt orðaðar.

Afgreiðsla

Samþykkt var að fresta gildistöku laganna til 1. júlí 2015 og nota tímann til að gera breytingar á lögunum.

Aðrar upplýsingar

Náttúruvernd. Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands (2011). Reykjavík. Umhverfisráðuneytið.
Fréttatilkynning umhverfisráðuneytis um útkomu Hvítbókarinnar 6. september 2011.

Löggjöf á Norðurlöndum

Noregur

Lov om forvaltning av naturens mangfold (naturmangfoldloven) LOV-2009-06-19-100.

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om naturbeskyttelse (Naturbeskyttelsesloven) LBK nr 951 af 03/07/2013.

Svíþjóð
Miljöbalk (808/1998).

Finnland
Naturvårdslag 20.12.1996/1096.



Síðast breytt 28.03.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.