Samantekt um þingmál

Orkuveita Reykjavíkur

178. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að setja ný heildarlög um Orkuveitu Reykjavíkur.

Helstu breytingar og nýjungar

Verið er að aðgreina samkeppnis- og sérleyfisþætti í rekstri orkufyrirtækja, sbr. 1. mgr. 14. gr. raforkulaga nr. 65/2003.

Breytingar á lögum og tengd mál

Felld verða úr gildi lög nr. 139/2001 um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Ríkisskattstjóri og Viðskiptaráð gera nokkrar efnislegar athugasemdir við frumvarpið og telja nokkuð skorta á að lagalega sé rétt staðið að málum.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum til áhersluauka.

Aðrar upplýsingar

Orkuveita Reykjavíkur.

 



Síðast breytt 02.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.