Samantekt um þingmál

Tekjuskattur

204. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að endurbæta og einfalda skattkerfið.

Helstu breytingar og nýjungar

Tekjur af afleiðusamningum verða meðhöndlaðar sem söluhagnaður en ekki vaxtatekjur. Opinber félög í rekstri vatnsveitu eða fráveitu verða undanþegin tekjuskatti af þeim tekjum. Felld verða brott ákvæði sem kveða á um að arðsúthlutun umfram 20% af skattalega bókfærðu eigin fé hlutafélags skuli skattlögð sem launatekjur þegar um er að ræða einstaklinga sem skylt er að reikna sér endurgjald. Bætt verður við lögin ákvæðum er taka til skattalegrar meðferðar við samruna hlutafélaga yfir landamæri. Lögfest verða sérstök ákvæði um milliverðlagningu ásamt skilgreiningu á tengdum lögaðilum og reglum um skjölun. Einnig er gert ráð fyrir að færa ákvæði um fyrirframgreiðslu á álögðum sérstökum fjársýsluskatti úr bráðabirgðarákvæði yfir í meginmál laganna auk breytinga á eindaga vegna greiðslu tekjuskatts af öðrum tekjum en launatekjum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Kostnaður og tekjur

Hefur lítil sem engin áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar efnislegar athugasemdir bárust sem einkum beindust að óskýru orðalagi.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Milliverðlagning. Áfangaskýrsla starfshóps (2013). Reykjavík. Fjármála- og efnahagsráðuneytið.

OECD Transfer Pricing Guidelines for Multinational Enterprises and Tax Administrations (2010). París. OECD.



Síðast breytt 27.01.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.