Samantekt um þingmál

Greiðslur yfir landamæri í evrum

238. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða í íslenskan rétt ákvæði tveggja reglugerða Evrópusambandsins um greiðslur í evrum yfir landamæri.

Helstu breytingar og nýjungar

Fáar minniháttar breytingar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er ræða ný lög. Felld verða úr gildi lög nr. 146/2004, um greiðslur yfir landamæri í evrum, og breytingar gerðar á ákvæðum laga nr. 120/2011, um greiðsluþjónustu.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar athugasemdir bárust og var tekið tillit til þeirra. 

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Reglugerðirnar eru í fylgiskjölum I. og II. með frumvarpinu.

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2007/64/EB um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 97/7/EB, 2002/65/EB, 2005/60/EB og 2006/48/EB og niðurfellingu tilskipunar 97/5/EB (texti sem varðar EES). Payment Services Directive.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/110/EB um stofnun og rekstur rafeyrisstofnana og varfærniseftirlit með þeim. E-Money Directive II, EMDII.



Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.