Samantekt um þingmál

Lögreglulög

251. mál á 143. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Í frumvarpinu eru lagðar til skipulagsbreytingar á lögreglunni í landinu. Markmið breytinganna er að efla lögregluna og gera henni kleift að sinna lögbundnum skyldum sínum þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára og fyrirsjáanlegt aðhald í ríkisfjármálum á næstu árum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lögregluumdæmi verði 8 í stað 15 og gert ráð fyrir aðskilnaði á embættum lögreglustjóra og sýslumanna. Lagt er til að ráðherra verði heimilt að fela sýslumönnum að fara með daglega lögreglustjórn í umboði lögreglustjóra á tilteknum svæðum með tilliti til sérstakra aðstæðna. Einnig er lagt til að skýrt verði kveðið á um hvaða aðili innan lögreglukerfisins annist bakgrunnsskoðanir og útgáfu öryggisvottana. Gert er ráð fyrir að í samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga sitji lögreglustjóri viðkomandi lögregluumdæmis og sveitarstjórar þeirra sveitarfélaga sem eru í umdæminu eða á því svæði þar sem nefndin starfar.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lögreglulög nr. 90/1996.

Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.

Kostnaður og tekjur

Ekki er unnt að meta fjárhagsleg áhrif af lögfestingu frumvarpsins.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir við frumvarpið studdu almennt skiptingu landsins í 8 lögregluumdæmi og aðskilnað embætta lögreglustjóra og sýslumanna. Gerðar voru athugasemdir við frumvarpið í heild og einstakar greinar þess.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með minni háttar breytingum. 


Síðast breytt 16.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.