Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki

274. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að framlengja bráðabirgðaákvæði í núverandi lögum til ársloka 2015.

Helstu breytingar og nýjungar

Ekki er um að ræða breytingar en ákvæðið veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til að grípa til sérstakra ráðstafana í samræmi við fyrirmæli þess til að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Bráðabirgðaákvæðið sem stefnt er að að framlengja er í lögum  nr. 161/2002
um fjármálafyrirtæki, en kom upphaflega inn í lögin haustið 2008 með svokölluðum  neyðarlögum, nr. 125/2008.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Í þeim athugasemdum sem bárust var ekki lagst gegn framlengingu ákvæðisins.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla efnahags- og viðskiptaráðherra um framtíðarskipan fjármálakerfisins778. mál, 140. löggjafarþing, 11. maí 2012.

Heildarumgjörð um fjármálastöðugeika á Íslandi (2012). Tillögur þriggja manna hópsins til atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.

 



Síðast breytt 31.03.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.