Samantekt um þingmál

Smáþörungaverksmiðja Algalífs Iceland ehf. á Reykjanesi

375. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að staðfesta fjárfestingarsamning við Algalíf Iceland ehf.

Helstu breytingar og nýjungar

Tekjuskattshlutfall félagsins verður 18% í stað 20%, félagið verður undanþegið stimpilgjöldum, almenna tryggingagjaldið og fasteignaskattur verða 50% lægri en áskilið er. Þá eru ýmis önnur gjöld lægri og félagið er undanþegið nokkrum ákvæðum laga um einkahlutafélög og eignarrétt en þau varða búsetu og ríkisfang eigenda og stjórnenda félagsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Samningurinn byggir á lögum um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, nr. 99/2010, sem féllu úr gildi í árslok 2013.

Kostnaður og tekjur

Ef áætlanir fyrirtækisins ganga eftir gætu tekjur ríkissjóðs aukist um 100 milljónir króna á ári en yrðu nokkuð hærri ef þessa samnings nyti ekki við.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar jákvæðar umsagnir bárust.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Upplýsingar á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis.

Iðnaðarráðuneyti (2009). Ívilnanir til eflingar fjárfestingum í atvinnurekstri: Skýrsla starfshóps



Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.