Samantekt um þingmál

Losun og móttaka úrgangs frá skipum

376. mál á 143. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að innleiða í íslensk lög tilskipun ESB um losun og móttöku úrgangs frá skipum.

Helstu breytingar og nýjungar

Gerð er sú krafa að í öllum höfnum á landinu verði til staðar aðstaða fyrir móttöku úrgangs frá skipum auk þess að lagðar verða þær skyldur á skipstjóra skipa sem koma til hafnar að skila öllum úrgangi frá skipi.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, og einnig að gera lítils háttar breytingar á hafnalögum, nr. 61/2003.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á nettóstöðu ríkissjóðs en hugsanlegum útgjaldaauka sveitarfélaga verði mætt með gjaldtöku.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar  umsagnir bárust með minni háttar athugasemdum.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/59/EB um aðstöðu í höfnum til að taka á móti úrgangi skipa og farmleifum.


Síðast breytt 20.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.