Samantekt um þingmál

Skipulagslög

512. mál á 143. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að gera bótaákvæði laganna skýrari.

Helstu breytingar og nýjungar

Að ríkið beri ábyrgð á greiðslu bóta ef tjón leiðir af ákvörðun sem fram kemur í landsskipulagsstefnu. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á skipulagslögum nr. 123/2010.
  • Skylt mál: Skipulagslög, 225. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 145. þingi (09.10.2015)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar umsagnir bárust með efnislegum athugasemdum sem tekið var tillit til.

Afgreiðsla

Frumvarðið var samþykkt með lítils háttar áherslubreytingum.

Aðrar upplýsingar

Skipulagsstofnun.


Síðast breytt 21.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.