Samantekt um þingmál

Veiðigjöld

568. mál á 143. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að breyta núgildandi lögum til bráðabirgða varðandi veiðigjöld fiskveiðiársins 2014-2015.

Helstu breytingar og nýjungar

Veiðigjöld verði ákveðin sem föst krónutala á afla úr sjó og þeim verði jafnað niður á grundvelli útreiknings á afkomustuðlum nytjastofna sem byggjast á reiknaðri framlegð við veiðiúthald úr einstökum stofnum. Einnig er ákvæði um breytingar á frítekjumarki vegna sérstaks veiðigjalds.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um veiðigjöld, nr. 74/2012.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs lækki um 1 milljarð króna árið 2014 og 1,8 milljarða króna árið 2015.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust en fáar efnislegar athugasemdir.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum sem gilda til eins árs. Ákveðið var að kalla saman nefnd fulltrúa allra þingflokka til að fjalla um fyrirhugað fyrirkomulag sérstaks veiðigjalds.

Aðrar upplýsingar

Fréttatilkynning ráðuneytisins, 23. apríl 2014, um framlagningu frumvarpsins.

Stjórn fiskveiða, tenglasafn upplýsingaþjónustunnar.

Fjölmiðlaumfjöllun

Enn byggt á gömlum gögnum. [fréttaskýring] Morgunblaðið 25.4.2014.

 



Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.