Samantekt um þingmál

Hlutafélög o.fl.

12. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að einfalda lagaumhverfi varðandi einkahlutafélög og hlutafélög.

Helstu breytingar og nýjungar

Breytingarnar miða að því að gera einstaklingum og lögaðilum kleift að útbúa og undirrita rafrænt stofngögn vegna stofnunar hlutafélaga og einkahlutafélaga og senda til hlutafélagaskráar á einfaldan og öruggan hátt. Aðrar breytingar eiga meðal annars að auka jafnræði meðal hluthafa og koma í veg fyrir að félag geti haft ótilhlýðileg áhrif á verðmyndun hlutabréfa með kaupum á eigin hlutum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um hlutafélög nr. 2/1995, lögum um einkahlutafélög nr. 138/1994 og lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
  • Endurflutt: Hlutafélög o.fl., 510. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 143. þingi (31.03.2014)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Nokkrar jákvæðar umsagnir bárust.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum er varða kaup hlutafélags á eigin hlutum á skráðum markaði.


Síðast breytt 15.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.