Samantekt um þingmál

Veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald

158. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að núgildandi lög standist grundvallarkröfu stjórnskipunarréttar um lagastoð.

Helstu breytingar og nýjungar

Breytingarnar varða hæfi dyravarða á veitinga- og skemmtistöðum og kröfur sem gerðar eru til þeirra en þeir verða að vera 20 ára og mega ekki hafa gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um veitingastaði, gististaði  og skemmtanahald nr. 85/2007.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsögn barst frá ASÍ sem studdi frumvarpið.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 17.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.