Samantekt um þingmál

Umboðsmaður skuldara

159. mál á 144. löggjafarþingi.
Félags- og húsnæðismálaráðherra.

Markmið

Að skýra heimildir umboðsmanns skuldara til að afla upplýsinga og gagna. 

Helstu breytingar og nýjungar

Umboðsmaður skuldara fær heimildir til að beita dagsektum ef upplýsingaskyldir aðilar standa ekki skil á umbeðnum upplýsingum. 

Breytingar á lögum og tengd mál

  • Endurflutt: Umboðsmaður skuldara, 523. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 143. þingi (31.03.2014)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð. 

Umsagnir (helstu atriði)

Þær umsagnir sem bárust voru almennt jákvæðar. Þó töldu Samtök fjármálafyrirtækja frumvarpið íþyngjandi fyrir fjármálafyrirtækin.

Afgreiðsla

Frumvarpið varð að lögum með þeirri breytingu að tilkynningu umboðsmanns skuldara um fyrirhugaða ákvörðun um dagsektir skuli fylgja rökstuðningur.


Síðast breytt 19.02.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.