Samantekt um þingmál

Leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána

240. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja að fyllsta samræmis verði gætt við framkvæmd frádráttarliða núgildandi laga.

Helstu breytingar og nýjungar

Felur ekki í sér eiginlegar breytingar á efnisatriðum heldur skýrir það sem áður þótti óskýrt.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána nr. 35/2014.

Kostnaður og tekjur

Á ekki að hafa áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnaraðilar gerðu ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpið.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Upplýsingar um leiðréttingar verðtryggðra húsnæðislána hjá Ríkisskattstjóra.


Síðast breytt 23.10.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.