Samantekt um þingmál

Yfirskattanefnd o.fl.

363. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að einfalda stjórnsýslu skattamála.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingarnar tengjast hlutverki og störfum yfirskattanefndar, þ.á m. að yfirskattanefnd taki við verkefnum ríkistollanefndar, úrskurðarvald yfirskattanefndar verði endurskilgreint og að bera megi ákvarðanir um alla þætti skattamála undir dómstóla.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um yfirskattanefnd nr. 30/1992 og þremur öðrum lögum þar sem vísað var til ríkistollanefndar.

Kostnaður og tekjur

Hefur líklega ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Þrjár jákvæðar athugasemdir bárust.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Yfirskattanefnd.

Ríkistollanefnd.



Síðast breytt 15.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.