Samantekt um þingmál

Fiskistofa o.fl.

417. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að sameina undir ein lög gjaldtökuheimildir Fiskistofu.

Helstu breytingar og nýjungar

Fiskistofa fær lagaheimild til að innheimta gjöld vegna veittrar þjónustu og eftirlits stofnunarinnar á grundvelli gjaldskrár sem á að endurspegla raunkostnað.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um Fiskistofu, nr. 116/2006, ásamt fimm öðrum lögum sem tengjast heimildum Fiskistofu til innheimtu gjalda.

Kostnaður og tekjur

Útgjöld ríkissjóðs munu lækka um tæpar 53 milljónir.

Umsagnir (helstu atriði)

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi leggjast gegn frumvarpinu í umsögn og segja það opna um of á heimildir Fiskistofu til innheimtu ýmissa gjalda án rökstuðnings.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Fiskistofa


Síðast breytt 03.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.