Samantekt um þingmál

Menntamálastofnun

456. mál á 144. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að skerpa og styrkja stjórnsýslu menntamála, gæðastarf og þjónustu við skóla með stofnun nýrrar stjórnsýslustofnunar menntamála, Menntamálastofnunar.

Helstu breytingar og nýjungar

Menntamálastofnun mun sinna þeim verkefnum sem Námsmatsstofnun og Námsgagnastofnun sinna nú, auk þess sem stjórnsýsluverkefni verða flutt frá mennta- og menningarmálaráðuneyti til hinnar nýju stofnunar. 

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru flestar jákvæðar en gerðar voru athugasemdir við einstaka greinar frumvarpsins. Mörgum þótti hlutverk stofnunarinnar ekki nægilega vel skilgreint. Einnig var áréttað mikilvægi þess að starfsmenn haldi kjörum sínum og öðrum réttindum samhliða þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með nokkrum breytingum. Meðal annars var bætt við nýrri grein um sjö manna ráðgjafarnefnd sem forstjóri hefur sér til ráðuneytis. 

Aðrar upplýsingar

Sambærilegar stofnanir á Norðurlöndum:
Skolverket í Svíþjóð.


Síðast breytt 01.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.