Samantekt um þingmál

Meðferð elds og varnir gegn gróðureldum

512. mál á 144. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að setja skýran ramma utan um sinubrennu, bálkesti og meðferð elds á víðavangi.

Helstu breytingar og nýjungar

Verði frumvarpið að lögum verður sinubrenna eingöngu heimil á lögbýlum þar sem stundaður er landbúnaður og einungis í rökstuddum tilgangi í jarðrækt eða búfjárrækt og þá samkvæmt skriflegu leyfi sýslumanns. Þá verður óheimilt að
brenna bálköst nema með skriflegu leyfi sýslumanns nema ef brenndur er minna en einn rúmmetri af efni.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en verði frumvarpið að lögum falla úr gildi lög um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi. nr. 61/1992.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnaraðilar eru nær allir samþykkir frumvarpinu og gera fáar athugasemdir.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Áhættuskoðun Almannavarna. Helstu niðurstöður (2011). Reykjavík: Ríkislögreglustjórinn, almannavarnadeild. Sjá bls. 13-14 og 94-95.


Síðast breytt 03.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.