Samantekt um þingmál

Byggðaáætlun og sóknaráætlanir

693. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að samhæfa aðgerðir í byggðamálum.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir að hlutverk og skipan stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál verði fært í lög. Verkefni hópsins eru meðal annars að vinna með landshlutasamtökum sveitarfélaga að gerð sóknaráætlana og að vinna með Byggðastofnun að gerð þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en gerðar eru lítilsháttar breytingar á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999.

Kostnaður og tekjur

Í fjárlögum ársins 2015 er gert ráð fyrir tæpum milljarði í þennan málaflokk.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnaraðilar styðja frumvarpið.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Byggðastofnun

Stýrinet stjórnarráðsins

Byggðakort ESA



Síðast breytt 01.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.