Samantekt um þingmál

Skipulagslög

225. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að breyta skipulagslögum hvað varðar grenndarkynningu.

Helstu breytingar og nýjungar

Breyta á ákvæðum er varða grenndarkynningu og skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis. Með breytingunni er skýrt að sveitarstjórn getur ákveðið að fara hefðbundna leið við breytingu deiliskipulags og einnig getur hún fallið frá grenndarkynningu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á skipulagslögum nr. 123/2010
  • Skylt mál: Skipulagslög, 512. mál (umhverfis- og auðlindaráðherra) á 143. þingi (31.03.2014)

Kostnaður og tekjur

Hefur engin áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítilsháttar orðalagsbreytingu.


Síðast breytt 03.02.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.