Samantekt um þingmál
370. mál á 145. löggjafarþingi.
Félags- og húsnæðismálaráðherra.
Markmið
Markmið frumvarpsins er að auðvelda húsnæðissamvinnufélögum að starfa á Íslandi, að auka vernd búseturéttarhafa og skýra nánar réttarstöðu þeirra, annarra félagsmanna sem og húsnæðissamvinnufélaganna sjálfra. Einnig er frumvarpinu ætlað að stuðla að sjálfbærum rekstri slíkra félaga.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að nákvæmari ákvæði verði í samþykktum húsnæðissamvinnufélaga um fjármál þeirra. Einnig er lagt til að húsnæðissamvinnufélögum verði óheimilt að kveða á um kaupskyldu á búseturétti í samþykktum sínum og búsetusamningum. Lagðar eru til breytingar sem miða að því að styrkja og skýra réttarstöðu búseturéttarhafa.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um húsnæðissamvinnufélög nr.
66/2003.
- Endurflutt: Húsnæðissamvinnufélög, 697. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 144. þingi (01.04.2015)
- Skylt mál: Húsaleigulög, 399. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 145. þingi (02.12.2015)
- Skylt mál: Húsnæðisbætur, 407. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 145. þingi (02.12.2015)
- Skylt mál: Almennar íbúðir, 435. mál (félags- og húsnæðismálaráðherra) á 145. þingi (16.12.2015)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.
Umsagnir (helstu atriði)
Umsagnir voru almennt jákvæðar. Búseti á Norðurlandi gerði þó miklar athugasemdir við frumvarpið. Einnig gerði ríkisskattstjóri athugasemdir við nokkrar greinar þess.
Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt með breytingum. Þær sneru meðal annars að því að við slit húsnæðissamvinnufélaga rennur fé þeirra ekki til þeirra sem að félaginu standa, umfram það gjald sem búseturéttarhafar greiddu fyrir búseturétt sinn.
Aðrar upplýsingar
Lög á Norðurlöndum.
Danmörk
Noregur
Svíþjóð
Finnland
Síðast breytt 26.04.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.