Samantekt um þingmál

Ársreikningar

456. mál á 145. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að einfalda og skýra lög um ársreikninga, sérstaklega hvað varðar lítil fyrirtæki.

Helstu breytingar og nýjungar

Minnstu félögunum, svonefndum örfélögum, verður heimilt að skila einfaldri útgáfu af ársreikningi til ársreikningaskrár sem byggist á skattframtali félagsins. Þá eru lagðar til nokkrar breytingar er snúa að viðurlagaákvæðum laganna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 og innleiða ársreikningatilskipun nr. 2013/34/ESB.

Kostnaður og tekjur

Kostnaðaráhrif eru óljós en ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum sem skerpa og skýra betur megintilgang frumvarpsins.

Aðrar upplýsingar

Ársreikningatilskipun Evrópusambandsins nr. 2013/34/ESB.


Síðast breytt 03.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.