Samantekt um þingmál

Grunnskólar

675. mál á 145. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að skýra lagaákvæði um sjálfstætt rekna grunnskóla og frístundastarf.

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð eru til ítarlegri lagaákvæði um sjálfstætt rekna grunnskóla en nú er að finna í lögum. Lögð er til sérstök regla sem leggur ríkar skyldur á sveitarfélög og skóla þegar börn eiga samkvæmt samningi ekki val um það hvort þau sækja nám í sjálfstætt reknum grunnskóla. Lagt til að sett verði sérstök regla sem taki til grunnskóla sem einkaaðili vill setja á fót en viðkomandi sveitarfélag vill ekki fjármagna. Lagarammi fyrir starfsemi frístundaheimila er styrktur.

Breytingar á lögum og tengd mál

  • Skylt mál: Grunnskólar, 426. mál (mennta- og menningarmálaráðherra) á 144. þingi (01.12.2014)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með lítils háttar breytingum.


Síðast breytt 03.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.