Samantekt um þingmál

Lögreglulög og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins

742. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Að lögleiða nýja skipan lögreglumenntunar á Íslandi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að menntun lögreglu verði færð á háskólastig, að starfsgengisskilyrði lögreglumanna verði diplómapróf í lögreglufræðum sem jafngildi a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum á háskólastigi, að sett verði á stofn mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu innan embættis ríkislögreglustjóra og að Lögregluskóli ríkisins verði lagður niður.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lögreglulög nr.  90/1996.

Kostnaður og tekjur

Ger er ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs umfram gildandi fjárlög fyrir árið 2016 muni aukast um 110 milljónir kr. árið 2017 og árlega um 52 milljónir kr. eftir það. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Lögreglunám á Íslandi. Skýrsla starfshóps um endurskoðun á lögreglunámi, júní 2015. Innanríkisráðuneytið.
Tillögur að framtíðarskipan lögreglumenntunar á Íslandi. Skýrsla starfshóps til innanríkisráðherra 16. september 2014.


Síðast breytt 01.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.