Samantekt um þingmál

Timbur og timburvara

785. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að koma í veg fyrir viðskipti með við úr ólöglegu skógarhöggi.

Helstu breytingar og nýjungar

Um er að ræða ný lög sem eiga að koma í veg fyrir viðskipti með við úr ólöglegu skógarhöggi og markaðssetningu timburs og timburvöru úr slíkum viði hér á landi. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október 2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað.


Síðast breytt 01.09.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.