Samantekt um þingmál

Stofnun millidómstigs

874. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.

Markmið

Að laga löggjöf að þeim breytingum sem stofnun millidómstigs, skv. lögum nr. 50/2016 og nr. 49/2016, hefur í för með sér.

Helstu breytingar og nýjungar

Veigamestu breytingarnar lúta að kæruheimildum á milli dómstiga, einkum í fullnusturéttarfari og málflutningsréttindum lögmanna.
Lagt er til að dómarar í Hæstarétti verði 10 út árið 2017 og dómarar í héraði 42.
Lagðar eru til breytingar í því skyni að tryggja nægilegt svigrúm við undirbúning Landsréttar.
Lagt er til að Hæstiréttur ljúki meðferð þeirra mála sem réttinum hafa borist þann 1. janúar 2018. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um dómstóla nr. 15/1998, lög um lögmenn nr. 77/1998,  lög um meðferð einkamála og lög um meðferð sakamála (millidómstig) nr.  49/2016.

Kostnaður og tekjur

Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs muni aukast árlega um 17–34 milljónir kr. Áætlað er að útgjöld ríkissjóðs muni aukast um 12,5 milljónir kr. árið 2017.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.



Síðast breytt 13.10.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.