Samantekt um þingmál

Viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum

111. mál á 146. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að efla trúverðugleika og stöðugleika á fjármálamarkaði.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lögfestar séu reglur um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, þ.e. eftirlit með gjaldþoli þeirra, samþjöppun áhættu og viðskiptum innan þeirra. Að auki eru lagðar til reglur sem samræma eftirlit og ferli hjá þeim eftirlitsstjórnvöldum í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins sem hafa eftirlit með félögum í samsteypum ásamt því að settur er rammi um upplýsingaskipti milli eftirlitsstjórnvaldanna. Frumvarpið er byggt á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um viðbótareftirlit með lánastofnunum, vátryggingafélögum og fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu sem eru hluti af samsteypu fjármálafyrirtækja.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög, en með gildistöku laganna verða breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

  • Skylt mál: Vátryggingastarfsemi, 396. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 145. þingi (02.12.2015)

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með nokkrum breytingum, sem sneru aðallega að orðalagi og tilvísunum.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/87/EB um viðbótareftirlit með lánastofnunum, vátryggingafélögum og fyrirtækjum í verðbréfaþjónustu sem eru hluti af samsteypu fjármálafyrirtækja ásamt breytingum með tilskipun 2011/89/ESB.

Reglur Fjármálaeftirlitsins nr. 165/2014 um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.

Tilskipun 2013/36/ESB um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlits með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum („CRD IV“-tilskipunin).

Tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur vátryggingafélaga („Solvency II“-tilskipunin).



Síðast breytt 09.01.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.