Lögheimili og aðsetur
345. mál á 148. löggjafarþingi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Markmið
Að stuðla að réttri skráningu lögheimilis og aðseturs einstaklinga á hverjum tíma og tryggja réttaröryggi í meðferð ágreiningsmála er varða skráningu lögheimilis.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að lögfest sé sú regla að ekki sé heimilt að eiga lögheimili á Íslandi og erlendis á sama tíma. Enn fremur er lagt til að námsmenn, á meðan þeir eru í námi, geti haft búsetu eða aðsetur á öðrum stað en lögheimili þeirra er skráð. Að auki er gert ráð fyrir að heimildir til að skrá lögheimili sitt á öðrum stöðum séu rýmkaðar. Lagt er til að hjónum verði heimilað að skrá sig til lögheimilis hvoru á sínum staðnum og að einstaklingum og heimilismönnum hans í þjóðskrá verði heimilað að dylja lögheimili sitt ef þurfa þykir.
Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um lögheimili, nr. 21/1990, og lög um tilkynningar aðsetursskipta, nr. 73/1952.
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir verulegum útgjöldum fyrir ríkissjóð.Afgreiðsla
Samþykkt með fáeinum breytingum, m.a. þeirri að lögheimili einstaklings skuli miðast við það sveitarfélag þar sem hann hefur haft þriggja mánaða samfellda dvöl.Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Bekendtgørelse af lov om Det Centrale Personregister LOV nr 646 af 02/06/2017.
Finnland
Lag om hemkommun 11.3.1994/201.
Noregur
Lov om folkeregistrering (folkeregisterloven) LOV-2016-12-09-88.
Svíþjóð
Folkbokföringslag (1991:481).