Dómstólar o.fl.
442. mál á 148. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.
Markmið
Að setja á stofn nýjan dómstól, Endurupptökudóm, sem kæmi í stað endurupptökunefndar.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að endurupptökunefnd verði lögð niður og að settur verði á fót sérdómstóll sem skera á úr um hvort heimila skuli endurupptöku mála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Gert er ráð fyrir að dómendur í þeim dómstól yrðu fimm: einn frá hverju dómstigi, einn lögmaður og einn háskólakennari með sérþekkingu á réttarfari. Jafnframt er lagt til að heimilt verði að endurupptaka mál oftar en einu sinni og að skilyrði fyrir endurupptöku einkamála verði rýmkuð.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um dómstóla, nr. 50/2016.
Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991.
Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.
Afgreiðsla
Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Bekendtgørelse af lov om rettens pleje LBK nr 1101 af 22/09/2017