Samantekt um þingmál

Almenn hegningarlög

114. mál á 148. löggjafarþingi.
Silja Dögg Gunnarsdóttir.

Markmið

Að banna umskurð á drengjum sem framkvæmdur er í öðrum tilgangi en læknisfræðilegum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að bannað verði að umskera drengi nema slík aðgerð sé talin nauðsynleg af heilsufarslegum ástæðum.  

Breytingar á lögum og tengd mál

Almenn hegningarlög, nr. 19/1940.

Kostnaður og tekjur

Ekki er búist við því að samþykkt frumvarpsins hafi nein áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar




Síðast breytt 14.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.