Jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna
393. mál á 148. löggjafarþingi.
Félags- og jafnréttismálaráðherra.
Markmið
Að vinna gegn mismunun og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, sbr. frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði.Helstu breytingar og nýjungar
Til að tryggja jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna á Íslandi er lagt til að skýrt verði kveðið á um að bein eða óbein mismunun á grundvelli kynþáttar eða þjóðernisuppruna sé óheimil á öllum sviðum samfélagsins, en um vinnumarkaðinn er lagt til að gildi sérstök lög. Að auki er lagt til að fyrirmæli um mismunun vegna kynþáttar eða þjóðernisuppruna teljist mismunun í skilningi frumvarpsins. Sama á við um áreitni þegar hún tengist kynþætti eða þjóðernisuppruna. Gert er ráð fyrir að Jafnréttisstofa annist stjórnsýslu í tengslum við framkvæmd laganna. Með samþykkt frumvarpsins er tryggt að efnislegt samræmi sé í íslenskum rétti og þeim rétti sem gildir innan Evrópusambandsins á grundvelli tilskipunar 2000/43/EB um framkvæmd meginreglunnar um jafna meðferð manna á tillits til kynþáttar eða þjóðernis, sem varðar ekki vinnumarkaðinn.Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög.- Endurflutt: Jöfn meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál (félags- og jafnréttismálaráðherra) á 146. þingi (04.04.2017)
- Skylt mál: Jöfn meðferð á vinnumarkaði, 394. mál (félags- og jafnréttismálaráðherra) á 148. þingi (19.03.2018)
Kostnaður og tekjur
Gert er ráð fyrir óverulegum áhrifum á útgjöld ríkissjóðs.Afgreiðsla
Samþykkt með þeirri breytingu helstri að skýrt er kveðið á um að Jafnréttisstofa hafi heimild til að leggja á dagsektir verði fyrirtæki eða stofnanir uppvísar að alvarlegum brotum gegn lögunum og láti ekki af háttsemi sem brýtur í bága við lögin þrátt fyrir tilmæli um það. Einnig var bætt við lögin bráðabirgðaákvæði sem kveður á um að ráðherra skuli innan árs leggja fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögunum um að meginreglan um jafna meðferð einstaklinga nái einnig til trúar, lífsskoðunar, fötlunar, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar á öllum sviðum samfélagsins nema á vinnumarkaði. Enn fremur er gildistöku laganna frestað til 1. september 2018.Aðrar upplýsingar
Samningur Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi
Samningur Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi
Birtingarmyndir dulinna fordóma og mismunun í garð innflytjenda á Íslandi. Íslenska þjóðfélagið, 2013.
Hvar þrengir að? Rauði krossinn á Íslandi, 2014.
Origin and multiple discrimination. Fjölmenningarsetur, Mannréttindaskrifstofa Íslands og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, 2014.
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Bekendtgørelse af lov om etnisk ligebehandling LBK nr 438 af 16/05/2012
Finnland
Diskrimineringslag 30.12.2014/1325
Noregur
Lov om likestilling og forbud mot diskriminering (likestillings- og diskrimineringsloven) LOV-2017-06-16-51
Svíþjóð
Diskrimineringslag (2008:567)