Samantekt um þingmál

Heilbrigðisþjónusta o.fl.

426. mál á 148. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að jafna aðgang þeirra sem þurfa á dvöl í dvalarrými eða dagdvöl að halda, óháð aldri, og forgangsraða eftir þörf. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að bætt verði ákvæðum í lög um heilbrigðisþjónustu er varða dvalarheimili og dagdvöl og endurskoðuð ákvæði í lögum um málefni aldraðra. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um sjúkratryggingar til samræmingar. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

Lög um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

Lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.

Kostnaður og tekjur

Frumvarpið eitt og sér leiðir ekki til hækkunar á útgjöldum ríkissjóðs, en verði það að lögum gæti þeim fjölgað sem eiga kost á viðkomandi þjónustu og þar með lengt biðlista en það fjölgar ekki rýmum sjálfkrafa. 

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.


Síðast breytt 13.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.