Samantekt um þingmál

Dómstólar o.fl.

442. mál á 148. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að setja á stofn nýjan dómstól, Endurupptökudóm, sem kæmi í stað endurupptökunefndar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að endurupptökunefnd verði lögð niður og að settur verði á fót sérdómstóll sem skera á úr um hvort heimila skuli endurupptöku mála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Gert er ráð fyrir að dómendur í þeim dómstól yrðu fimm: einn frá hverju dómstigi, einn lögmaður og einn háskólakennari með sérþekkingu á réttarfari. Jafnframt er lagt til að heimilt verði að endurupptaka mál oftar en einu sinni og að skilyrði fyrir endurupptöku einkamála verði rýmkuð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um dómstóla, nr. 50/2016.

Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991.

Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Bekendtgørelse af lov om rettens pleje  LBK nr 1101 af 22/09/2017



Síðast breytt 13.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.