Samantekt um þingmál

Kvikmyndalög

465. mál á 148. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að styrkja framleiðslu og dreifingu íslenskra kvikmynda og kvikmynda sem eru á íslensku eða hafa skírskotun til íslenskrar menningar og unnar eru og kostaðar af aðilum með skráð aðsetur í EES-ríki.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að umsækjendur frá öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins geti sótt um styrk til Kvikmyndasjóðs. Jafnframt eru lögð til ítarlegri skilyrði en nú eru um að styrkur verði einungis veittur vegna íslenskra kvikmynda, kvikmynda sem eru á íslenskri tungu eða hafa íslenska menningarlega eða samfélagslega skírskotun. Enn fremur er lagt til að tekin verði upp í kvikmyndalög ákvæði um sýningarstyrki vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Kvikmyndalög, nr. 137/2001.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum útgjöldum ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA 134/14/COL frá 26. mars 2014 um nítugustu og fimmtu breytingu á málsmeðferðar- og efnisreglum á sviði ríkisaðstoðar sem felur í sér að felldar eru inn nýjar leiðbeinandi reglur um ríkisaðstoð til kvikmynda og annarra hljóð- og myndmiðlaverka („Leiðbeinandi reglur um kvikmyndir og hljóð- og myndmiðla 2014“) (EES-viðbætir við Stjórnartíðindi ESB nr. 52 þann 18. september 2014).

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk

Lov om film  LOV nr 186 af 12/03/1997



Síðast breytt 12.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.