Samantekt um þingmál

Persónuvernd og vinnsla persónuupplýsinga

622. mál á 148. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að með persónuupplýsingar sé farið í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs og að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra upplýsinga og frjálst flæði þeirra á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ný reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga verði innleidd í íslenskan rétt. Reglugerðin felur í sér mjög umfangsmiklar breytingar á sviði persónuverndar og með henni eru grundvallarréttindi einstaklinga í stafrænum heimi styrkt og jafnframt greitt fyrir þróun á hinum innri stafræna markaði með því að einfalda reglur fyrir fyrirtæki. Samþykkt frumvarpsins fæli þannig m.a. í sér breytt og aukið hlutverk innlendra eftirlitsyfirvalda, aukin réttindi einstaklinga (betri vernd og aukinn ákvörðunarréttur yfir persónuupplýsingum sínum), nýjar öryggisvottanir og sektarheimildir.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög en með gildistöku laganna verða auk þess gerðar breytingar á 42 öðrum lögum.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir 77 milljóna kr. auknu framlagi til Persónuverndar árið 2019, 75 milljónum kr. árið 2020, 58 milljónum kr. árið 2021, 57 milljónum kr. árið 2022 og 55 milljónum kr. árið 2023. Tímabundinn undirbúningskostnaður Landspítalans við að mæta skyldum frumvarpsins er áætlaður um 8,6 milljónir kr. Kostnaður ríkisstofnana annarra en Persónuverndar og Landspítala er lauslega áætlaður í kringum 300 milljónir kr. frá og með árinu 2019. Gert er ráð fyrir að þessum kostnaði verði fundinn staður innan útgjaldaramma viðkomandi málefnasviða og málaflokka ráðuneyta í fjárlögum sem og í fjármálaáætlun 2019–2023.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum, sem snúa mestmegnis að orðalagi og leiðréttingum til að tryggja skýrleika og vísanir milli greina.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 frá 27. apríl 2016 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin).

Persónuvernd – Ný persónuverndarlöggjöf 2018.

Bæklingar Persónuverndar um nýjar persónuverndarreglur 2018.



Síðast breytt 13.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.