30.5.2016

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 30. maí

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fara fram kl. 19.35 mánudaginn 30. maí 2016 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð, Píratar

Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkinguna tala Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri þriðju Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir , 5. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Elín Hirst, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, í annarri, og Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

 Ræðumenn Pírata eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri, en í þriðju umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

Eldhúsdagur maí 2016