7.9.2012

Starfsáætlun 141. löggjafarþings

Í starfsáætlun 141. löggjafarþings 2012-2013 er meðal annars birt áætlun um fjölda þingfundadaga, daga sem eingöngu eru ætlaðir til nefndafunda og kjördæmadaga.

1. Þingsetning verður þriðjudaginn 11. september.

2. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi miðvikudagsins 12. september.

3. 1. umræða um fjárlagafrumvarp 2013 fer fram fimmtudaginn 13. september og 14. september. Stefnt er að 2. umræðu fimmtudaginn 22. nóvember og 3. umræðu þriðjudaginn 4. desember.

4. Stefnt er að því að 1. umræða um fjáraukalagafrumvarp 2012 fari fram þriðjudaginn 25. september, 2. umræða 8. nóvember og 3. umræða 15. nóvember.

5. Miðvikudaginn 26. september verða ræddar skýrslur umboðsmanns Alþingis og Ríkisendurskoðunar.

6. Föstudagurinn 30. nóvember er síðasti dagur til að leggja fram ný þingmál sem eiga að koma á dagskrá fyrir jólahlé.

7. Nefndastörfum lýkur 5. mars.

8. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) verða miðvikudaginn 13. mars.

9. Kjördæmadagar eru 1.–4. október 2012 og 4.–7. febrúar 2013.