5.7.2012

Hátíðarsamkoma í Alþingishúsinu sunnudaginn 8. júlí

Næstkomandi sunnudag, 8. júlí, verða liðin 90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi, en hún var landskjörin alþingismaður 1922-1930. Af því tilefni hefur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, boðið öllum þeim konum sem tekið hafa sæti á Alþingi, bæði sem þingmenn og varaþingmenn, til hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu.

Á hátíðarsamkomunni flytur forseti Alþingis ávarp. Tvö erindi verða flutt af fyrrverandi þingmönnum, Kristín Ástgeirsdóttir fjallar um Ingibjörgu H. Bjarnason og Helga Guðrún Jónasdóttir ræðir um stjórnmálaþátttöku kvenna. Kvennakórinn Vox feminae mun syngja við athöfnina.

Athöfnin verður í sal Alþingis og hefst kl. 3 síðdegis. Bein útsending verður frá athöfninni á vef Alþingis.