29.5.2012

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 19.50 29. maí 2012

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram kl. 19.50 29. maí 2012. Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa 4 mínútur.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:
Sjálfstæðisflokkur,
Samfylkingin,
Framsóknarflokkur,
Vinstri hreyfingin – grænt framboð og
Hreyfingin.
Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Ólöf Nordal, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Skúli Helgason, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmi suður.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, en Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð talar Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, og Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis í þeirri þriðju.

Ræðumenn utan flokka eru: Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, talar síðust í fyrstu umferð, Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, talar síðastur í annarri umferð og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis, talar síðastur í þriðju umferð.